Um sendiskrifstofu

Árið 1999 var opnuð aðalræðisskrifstofa í Winnipeg með útsendum diplómat. Frá 1942 og fram að þeim tíma var starfandi íslenskur heiðurskonsúll í Winnipeg.

Eftirfarandi hafa gegnt starfi aðalræðismanns í Winnipeg. Svavar Gestsson, sendiherra 1999-2001, Eiður Guðnason, sendiherra 2001-2003, Kornelíus Sigmundsson, sendiherra 2003-2004, Atli Ásmundsson, aðalræðismaður 2004-2013, Hjálmar W. Hannesson sendiherra frá 2013-2016, Þórður Bjarni Guðjónsson, aðalræðismaður 2016-2020, Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra 2020-2021 og Vilhjálmur Wiium, aðalræðismaður frá 2022.

Meginverkefni aðalræðisskrifstofunnar snúa að samfélagi fólks af íslenskum ættum og skrifstofan greiðir fyrir menningaratburðum, listum og fræðum og öðru sem má verða til að hjálpa áhugasömu fólki til að leggja rækt við sögu sína og menningararf. Á hverju ári koma listamenn, fræðimenn og aðrir til að miðla þakklátum áheyrendum af þekkingu sinni og list.

Ræðisskrifstofan aðstoðar íslenska ríkisborgara og fyrirtæki í samskiptum við fyrirtæki og yfirvöld og dreifir upplýsingum og fróðleik um Ísland ásamt því að taka þátt í kynningum allskonar sem koma landi og þjóð til góða.

Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar eru fylkin Manitoba, Saskatchewan, að undanskilinni borginni Regina, og fylkið Alberta, að undanskildum borgunum Calgary og Edmonton.

Aðalræðisskrifstofa Íslands - Winnipeg

Heimilisfang:

1 Wellington Crescent, suite 100
Winnipeg, Manitoba R3M 3Z2

Sími: +1 (204) 284 1535

Netfang: winnipeg@utn.is

Opnunartími: Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:00 - 16:00

Nafn Starfsheiti Netfang
Lesley Robertson ritari winnipeg@utn.is
Vilhjálmur Wiium aðalræðismaður winnipeg@utn.is

Aðalræðismaður Íslands

Vilhjálmur Wiium

 

Fæddur í Reykjavík, 17. desember 1964

Starfsreynsla

2022 - Aðalræðismaður Íslands í Winnipeg

2020 - Fastafulltrúi Íslands hjá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna með aðsetur í Reykjavík

2020 - Deildarstjóri umhverfismála á skrifstofu tvíhliða samstarfs og svæðisbundinna málefna

2018 - Deildarstjóri tvíhliða þróunarsamvinnu á þróunarsamvinnuskrifstofu, síðar alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu

2018 - Leiddi úttektir á sviði þróunarsamvinnu í deild eftirlits með stjórnsýsluframkvæmd og rekstri utanríkisráðuneytisins

2016 - Forstöðumaður sendiráðs Íslands í Mapútó, Mósambík

2012 - Forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lílongve, Malaví

2011 - Verkefnastjóri hjá ÞSSÍ staðsettur í Lílongve

2011 - Sviðsstjóri sérstakra verkefna á aðalskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ)

2007 - Forstöðumaður sendiráðs Íslands í Windhoek og umdæmisstjóri ÞSSÍ í Namibíu

2006 - Verkefnastjóri félagslegra verkefna hjá ÞSSÍ staðsettur í Windhoek

2003 - Lektor í hagfræði hjá Háskólanum í Reykjavík

1999 - Verkefnastjóri hjá ÞSSÍ staðsettur í Ministry of Fisheries and Marine Resources í Windhoek í Namibíu, þ.m.t. starfandi aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra Namibíu 2000-2001

1997 - Lektor í hagfræði hjá National University of Ireland, Galway

Menntun

2001 - doktorspróf í hagfræði með áherslu á fiskveiðistjórnun frá Simon Fraser University, Kanada

1993 - M.A. próf í hagfræði frá Simon Fraser University

1991 - B.Sc. próf í hagfræði frá Háskóla Íslands