Ávarp á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Ræða á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri 24. september 2026.
Kæra sveitarstjórnarfólk.
Ég þakka fyrir tækifærið til að ávarpa Landsþingið og eiga samtal við ykkur hér í dag.
Mig langar að byrja á að færa nýjum formanni Almari Guðmundssyni hamingjuóskir með formannskjörið, ég hlakka til að vinna með nýjum formanni að eflingu sveitarstjórnarstigsins á næstu árum.
Þá vil ég þakka fráfarandi formanni Jóni Birni Hákonarsyni fyrir störf hans í þágu Sambandsins og sveitarfélaga og gott samstarf.
Ég mælti nýverið á Alþingi fyrir frumvarpi mínu til nýrra sveitarstjórnarlaga en eins og þið vitið náði frumvarpið ekki fram að ganga fyrir þinglok í vor.
Ég legg mikla áherslu á að frumvarpið verði samþykkt fyrir árslok þannig að þið, kjörnir sveitarstjórnarfulltrúar, getið farið að starfa eftir nýjum sveitarstjórnarlögum.
Lengi hefur verið unnið að endurskoðun laganna í náinni samvinnu við sveitarstjórnarstigið, bæði með vinnufundum með landshlutasamtökum og kynningarfundum með íbúum og sveitarstjórnarfólki um land allt.
Frumvarpið felur í sér mikilvægar umbætur á starfsumhverfi sveitarstjórna og þar með sveitarstjórnarfólks.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að ég hef lengi verið talsmaður eflingar sveitarstjórnarstigsins. Samfélagið sem við búum í verður stöðugt flóknara og við þurfum öflug sveitarfélög til að veita þá þjónustu sem þeim ber skylda til gagnvart íbúum sínum.
Það er því markmið nýrra sveitarstjórnarlaga að skapa forsendur fyrir öflug og sjálfbær sveitarfélög sem eru vel í stakk búin til að takast á við umfangsmikil verkefni og tryggja íbúum faglega og skilvirka grunnþjónustu.
Meðal annars eru lagðar til breytingar á almennum reglum sem varða:
- stjórnsýslu sveitarfélaga,
- íbúalýðræði og samráð,
- samvinnu sveitarfélaga,
- fjármál og reikningsskil sveitarfélaga,
- starfshætti kjörinna fulltrúa,
- o.fl.
Mér finnst mikilvægt að nefna að frumvarpið felur í sér tillögu um mun skýrari feril um mat á fjárhagslegum áhrifum lagafrumvarpa og annarra stjórnvaldsfyrirmæla á sveitarfélög.
Þar legg ég meðal annars til nýja leið þegar upp kemur ágreiningur um fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög. En samkvæmt frumvarpsákvæðinu (sem er 143. gr. frumvarpsins ) verður ráðherrum og sveitarfélögum heimilað að vísa ágreiningi til samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga, sem sum ykkar þekkið undir nafninu Jónsmessunefnd.
Þá legg ég til í frumvarpinu að ef í ljós kemur að ekki hefur farið fram fjárhagslegt mat á áhrifum á sveitarfélög skuli viðkomandi ráðherra eiga frumkvæði að viðeigandi ráðstöfunum sem geta þá m.a. falið í sér breytingu á fjármögnun eða þjónustukröfum.
Það er von mín að þessar breytingar komi til með að bæta samskipti milli stjórnsýslustiganna og skapa aukna sátt um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.
Á næstu vikum mun ég mæla fyrir nýrri byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041. Byggðamál snerta alla málaflokka ríkisins með einum eða öðrum hætti og birtist byggðastefna stjórnvalda því í fjölmörgum opinberum stefnum og áætlunum.
Ég hef því við endurskoðun byggðaáætlunar lagt mikla áherslu að hún sé sem mest og best samhæfð öðrum stefnum og áætlunum ríkisins.
Samráð hefur verið rauði þráðurinn við endurskoðunina og hafa sveitarfélögin og landshlutasamtök þeirra gengt þar lykilhlutverki og hefur hér verið um þétt samráð að ræða.
Áherslan í byggðamálum, bæði hér á Íslandi og í löndunum í kringum okkur, er að færast frá því að „jafna allt“ yfir í að byggja á styrkleikum hvers svæðis.
Við viljum styðja við fjölbreytt atvinnulíf, nýsköpun, menningu, menntun og samfélagslega seiglu – út frá sérstöðu hvers landshluta.
Markmið mín og skilaboð byggðaáætlunar eru skýr: ég vil að fólk hafi raunverulegt frelsi til búsetu, að samfélög um land allt geti dafnað og ég vil styrkja stöðu Íslands þegar kemur að alþjóðlegri samkeppnishæfni.
En samkeppnishæfni Íslands er og verður og hefur alltaf verið grundvöllur hagsældar á Íslandi. Og mun skipta enn meira sköpum í framtíðinni þegar kemur að lífskjörum og byggð í landinu, í heimi sem verður sífellt nátengdari og minni.
Þessu tengdu vil ég nefna þingsályktun um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040, sem samþykkt var á Alþingi í október sl. haust 2025. Í þingsályktuninni fól Alþingi ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd borgarstefnu fyrir tvö svæði;
- Borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins: En það svæði er frá Hvítá til Hvítár, þ.e. svæðinu frá Reykjanesi austur á Selfoss og norður í Borgarnes.
- Borgarsvæði Akureyrar: Sem eru Eyjafjörður frá Siglufirði í vestri og austur til Húsavíkur og Mývatnssveitar.
Borgarstefna á að vera hluti af samhæfingu stefna í samgöngumálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og taki mið af samþykktum stefnum stjórnvalda á öðrum málefnasviðum.
Borgarstefna á að stuðla að þróun og eflingu tveggja borgarsvæða á Íslandi, annars vegar með því að styrkja höfuðborgina Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og hið virka svæði þess og hins vegar með því að skilgreina Akureyri sem svæðisborg, efla hana sem slíka, hlutverk hennar og hið virka svæði.
Með þessari vinnu ætlum við okkur að efla samkeppnishæfni Íslands.
Innviðaráðuneytið hefur nú ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Fyrsta skrefið er gerð grænbókar þar sem dregin er fram heildarmynd um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins.
Mörg sveitarfélög hafa skilað inn mikilvægu innleggi inn í þá vinnu og vil ég fyrir hönd ráðuneytisins þakka fyrir það.
Við stefnum að því að birta grænbók um málefni sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda fyrir lok þessa árs.
Þá geri ég ráð fyrir að mæla fyrir tillögu til þingsályktunar um nýja stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga á Alþingi næsta haust 2027.
Sveitarfélögum mun gefast fleiri tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótunina og ég hvet ykkur því að fylgjast vel með.
Eitt af því sem ég mun leggja áherslu á í nýrri stefnu í málefnum sveitarfélaga er áfallaþol sveitarfélaga.
Sveitarfélögin bera ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu sem hver einasti Íslendingur reiðir sig á alla daga, svo sem vatns- og fráveitur, félags- og skólaþjónustu, sorphirðu auk stafrænnar þjónustu af ýmsu tagi.
Truflanir á þessari þjónustu geta haft skjót og víðtæk áhrif á daglegt líf fólks. Breytt heimsmynd minnir okkur á að þessir innviðir geta orðið fyrir áföllum hvort sem er af völdum náttúruhamfara eða öfgaveðurs. Eða af völdum rofs á aðfangakeðjum eða netárása, sem leitt geta til rofs á fjarskiptum eða orkuafhendingu svo dæmi séu tekin.
Þá eru kerfi sveitarfélaga og ríkis nátengd og veikleiki á einum stað getur haft áhrif langt út fyrir staðarmörk einstakra sveitarfélaga.
Til að bregðast við þessu þarf samstarf og skýra verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þetta munum við ávarpa við endurnýjun stefnumótandi áætlunar Alþingis í málefnum sveitarfélaga.
Heilt yfir hefur rekstur sveitarfélaga gengið ágætlega síðustu tvö ár.
Rekstrarniðurstaða sveitarstjórnarstigsins var jákvæð um sem nemur átta milljörðum í fyrra þó róðurinn hafi verið mis-erfiður eftir sveitarfélögum.
Reyndar batnaði undirliggjandi rekstur árið 2025 frá árinu áður ef litið er framhjá breytingu lífeyrisskuldbindinga. Þá var veltufé frá rekstri 8% sem er viðunandi.
Með þessu er ég þó ekki að halda því fram að sveitarfélög landsins séu of vel haldin, þó síður sé!
Segja má að batnandi undirliggjandi rekstur sveitarfélaga sé frekar merki um útsjónarsemi og ráðdeild kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélaga um land allt, og er það vel.
Líkt og ég vék að hér fyrr í ræðu minni, liggur fyrir Alþingi frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga þar sem fjármálakafli laganna tekur meðal annars miklum breytingum.
Ætlunin er að auka gegnsæi og framtíðarhugsun þegar kemur að fjármálum sveitarfélaga.
Þessu til viðbótar er ég með á þingmálskrá núverandi þings tvö mikilvæg tekjustofnamál fyrir sveitarfélögin sem báðum er ætlað að skjóta styrkari grunni undir rekstur sveitarfélaga.
Afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati hefur um lengri tíma verið mikið hagsmuna- og réttlætismál fyrir orkusveitarfélögin en ég geri ráð fyrir að mæla fyrir því máli í janúar næstkomandi.
Um er að ræða hagsmunamál fyrir öll sveitarfélög landsins, þar sem hærri tekjur til sumra sveitarfélaga gagnast flestum í gegnum hærri framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Ég reikna einnig með að mæla fyrir breytingum á hafnarlögum í febrúar. En þar er ætlunin að skýra gjaldtökuheimildir hafnarlaga, bæði til að tryggja að hafnir geti tekið gjald fyrir þá þjónustu sem þær veita og stuðla að gegnsæi í gjaldtöku þeirra. Einnig kemur til skoðunar ákvæði til að tryggja samkeppni innan hafna.
Ég vil að lokum óska nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum innilega til hamingju með kjörið, bæði ykkur sem eruð að stíga ykkar fyrstu skref og þeim sem fyrir voru og endurnýjuðu kjör sitt.
Ég óska ykkur velfarnaðar í störfum ykkar og hlakka til að starfa með ykkur í þágu sveitarfélaganna og fólksins í landinu.
Megi landsþingið verða til að efla sveitarfélög í landinu, styrkja og bæta þjónustu þeirra við íbúa sína.
Takk fyrir.