Nýr sendiherra tekur til starfa
ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
05. ágúst 2019
/
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn
Nýr sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, Helga Hauksdóttir, tók til
starfa í sendiráðinu um mánaðarmótin. Helga starfaði áður sem
skrifstofustjóri á laga- og stjórnsýsluskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, en hún er fyrsta konan sem gegnir stöðu
sendiherra Íslands í Danmörku. Helga mun með haustinu afhenda Margréti
Þórhildi Danadrottningu trúnaðarbréf sitt. Við bjóðum Helgu velkomna til
starfa og hlökkum mikið til samstarfsins.