Ráðherrafundur OECD
05. júní 2025
/
Sendiráð Íslands í París
Ráðherrafundur OECD var haldinn í París 3. - 4. júní sl. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat fundinn fyrir Íslands hönd.
Yfirskrift fundarins var um leiðir til að tryggja sjálfbæra velmegun með alþjóðaviðskiptum, fjárfestingum og tækninýjungum.
Á fundinum var m.a. rætt um þróun alþjóðaviðskipta, þróunarsamvinnu, stafræna hagkerfið og gervigreind. Þá voru samskipti OECD við önnur ríki og ríkjahópa til umfjöllunar og m.a. samþykkt sérstök stefnumörkun í málefnum ríkja Suður-Ameríku og Karíbahafs.
Í tengslum við fundinn sótti fjármála- og efnahagsráðherra fund ACCTS ríkjahópsins um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun, en í honum sitja auk Íslands Kosta Ríka, Nýja Sjáland og Sviss. Þá átti ráðherrann tvíhliða fundi með ráðherrum Eistlands, Nýja Sjálands og Kosta Ríka, auk funda með sérfræðingum OECD.