Íslandshátíð í Gravelines í Frakklandi
01. október 2025
/
Sendiráð Íslands í París
Ólafur Sigurðsson, varafastafulltrúi, tók þátt í Íslandshátíð sem haldin var í Gravelines í Frakklandi um helgina. Gravelines og Fjarðabyggð hafa verið vinabæir síðan 1991 og sóttu fulltrúar Fjarðabyggðar og tveggja annarra sveitarfélaga á Englandi og Þýskalandi jafnframt hátíðina.
Gravelines og Fjarðarbyggð eru tengd nánum böndum þar sem bæirnir hafa lagt rækt við að minnast veiða franskra sjómanna við Íslandsstrendur á nítjándu öld og í byrjun þeirrar tuttugustu, sem kostuðu um fjögur þúsund sjómenn lífið.
Í Gravelines er minningarreitur um hina föllnu sjómenn og á Fáskrúðsfirði er einnig sams konar minningarreitur og þá hefur franski spítalinn þar í bæ nýlega verið gerður upp. Þar er nú glæsilegt hótel, veitingahús og safn um franska sjómenn. Á Fáskrúðsfirði eru jafnframt haldnir „Franskir dagar“ árlega og hafa fulltrúar Gravelines bæjar sótt þá hátíð.