ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
15 september 2004
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Nýr ráðuneytisstjóri

Ragnhildur Arnljótsdóttir hóf í dag störf sem nýr ráðuneytisstjóri félagsmálaráðuneytisins. Jafnframt mun fráfarandi settur ráðuneytisstjóri, Hermann Sæmundsson, fara til starfa sem fulltrúi félagsmálaráðuneytisins og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins í sendiráði Íslands í Brussel.