ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
26 október 2010
/
Forsætisráðuneytið
Drög að nýjum upplýsingalögum
Starfshópur sem forsætisráðherra skipaði til að endurskoða upplýsingalög nr. 50/1996 hefur skilað af sér drögum að frumvarpi. Trausti Fannar Valsson lektor er formaður starfshópsins en í honum eiga auk þess sæti Margrét Vala Kristjánsdóttir lektor og Þórhallur Vilhjálmsson yfirlögfræðingur Alþingis.
Þeir sem vilja gera athugasemdir við frumvarpið á þessu stigi eru beðnir að senda þær á netfangið: postur@for.stjr.is eigi síðar en miðvikudaginn 3. nóvember næstkomandi. Ef spurningar vakna um frumvarpið má hafa samband við Pál Þórhallsson skrifstofustjóra, netfang: pall.thorhallsson@for.stjr.is.