ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
27 apríl 2012
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Kennslutími í skyldunámi í Evrópu samkvæmt viðmiðunarstundaskrám

Eurydice, upplýsinganet um menntamál í Evrópu, hefur birt á heimasíðu sinni skýrslu með yfirliti yfir skólatíma í skyldunámi í öllum ríkjum Evrópu samkvæmt opinberum viðmiðunarstundaskrám og reglugerðum. Gerð er grein fyrir kennslutíma í einstaka námsgreinum í skyldunámi og þeim tíma sem nemendur dvelja í skóla fyrir og eftir að kennslu lýkur.