ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
24 október 2012
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi

Stjórnvöld í Þýskalandi bjóða fram styrki handa Íslendingum til að stunda háskólanám og rannsóknastörf í Þýskalandi skólaárið 2013-2014.

Þýskaland
Þýskaland

Stjórnvöld í Þýskalandi bjóða fram styrki handa Íslendingum til að stunda háskólanám og rannsóknastörf í Þýskalandi skólaárið 2013-2014.  Auk styrkja til háskólanáms og rannsóknastarfa eru veittir styrkir til tungumálanáms, kynnisheimsókna, starfsþjálfunar á ákveðnum sviðum svo og eru veittir sérstakir styrkir til listamanna. Einnig eru í boði styrkir fyrir fyrrverandi DAAD-styrkþega.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á eftirfarandi vefslóð:

  •  Frekari upplýsingar veitir einnig Jessica Guse, lektor í þýsku við Háskóla Íslands (jessica@hi.is).
  • Umsóknum skal skilað til mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir 7. desember 2012.