ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en 5 ára.
10 mars 2017
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Frestur til að skila umsögnum vegna eigandastefnu fyrir fjármálafyrirtæki framlengdur
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur framlengt til 20. mars frest til umsagna við drög að uppfærðri eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki.
Drögin voru birt á vef ráðuneytisins 10. febrúar síðastliðinn.
Umsagnarfrestur er til og með 20. mars 2017. Umsagnir óskast sendar á postur@fjr.is