2. STEM-áherslur á háskólastigi
| Aðgerðin er í vinnslu |
Staða aðgerðarinnar
Nóvember 2026: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið mun styðja við aðgerðir hjá háskólum til að auka stuðning við nýnema í STEM-greinum til að draga úr brottfalli. Aðgerðirnar geta m.a. falist í auknum stuðningi í gegnum námsráðgjöf, stoðkennslu og undirbúningsnám. Slíkar stuðningsaðgerðir eru þegar í framkvæmd hjá einstökum háskólum og verður stuðlað að því að háskólar geti deilt og nýtt reynslu af slíkum úrræðum hjá öðrum háskólum. Aðrar aðgerðir eru á undirbúningsstigi og efnt verður til samráðs við háskólana um útfærslu þeirra. Samráð verður haft við mennta- og barnamálaráðuneytið og Samtök iðnaðarins um aðra þætti aðgerðarinnar. Aukinn stuðningur við STEM-greinar á háskólastigi verður sérstaklega útfærður í reiknilíkani háskóla í samræmi við áherslur atvinnustefnu. Nánar verður gerð grein fyrir útfærslunni í fylgiriti með samþykktum fjárlögum 2027.
Aðgerðin
Markmið aðgerðarinnar er að fjölga brautskráðum nemendum með STEM-menntun á háskólastigi.
Aðgerðin beinist í fyrsta lagi að því að fjölga fagmenntuðum kennurum í STEM-greinum á öllum skólastigum í samstarfi við skólasamfélagið og sveitarfélög. Áhersla verður lögð á aukna færni í STEM-greinum í kennaranámi og endurmenntun kennara, auk þess sem boðið verður upp á sveigjanlegar námsleiðir fyrir kennara sem vilja efla færni sína í umræddum greinum. Framboð símenntunar og starfsþróunar verður aukið og endurskoðað, með það að markmiði að styðja við faglega þróun kennara. Áhersla verður lögð á að skapa hvata fyrir fólk með STEM-menntun á háskólastigi til að bæta við sig kennsluréttindum í viðkomandi greinum.
Í öðru lagi verður stuðningur aukinn við nýnema í STEM-greinum á háskólastigi, með undirbúningsnámskeiðum og sveigjanlegum námsleiðum. Unnið verður að því að styrkja grunnþekkingu, minnka líkur á brottfalli og auka samfellu á milli háskóla og framhaldsskóla, einkum á sviði STEM-greina.
Í þriðja lagi verða þróaðar leiðir í samstarfi við háskólana til að styrkja samstarf háskóla og atvinnulífs í STEM-greinum.
Tímarammi: 2026–2027.
Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.
Áætlaður kostnaður: 200 milljónir á ári á gildistíma áætlunar.
Afurð: Fjölgun brautskráðra háskólastúdenta úr STEM-greinum.