3. Byggjum gervigreindarinnviði í þágu atvinnulífs og samfélags

 Aðgerðin er í vinnslu

 

Staða aðgerðarinnar

Nóvember 2026: Möguleikar og tækifæri til uppbyggingar gervigreindarinnviða hér á landi hafa verið kortlögð, með gervigreindarfullveldi (Sovereign AI) að leiðarljósi. Áherslur erlendra ríkja  hafa verið greindar sem og mögulegt samstarf. Samtöl hafa átt sér stað við innlenda og erlenda aðila um innkaup á skjákortum (GPUs) og hýsingu þeirra, þ.á.m. við fulltrúa NVIDIA, sem er lykilframleiðandi skjákorta á heimsvísu. Í samstarfi við önnur ráðuneyti og hagaðila er unnið að greiningu,  stefnumótun og fyrstu aðgerðum í uppbyggingu innviða til hagnýtingar gervigreindar hér á landi.

Aðgerðin

Markmið aðgerðarinnar er að tryggja ábyrga og samkeppnishæfa uppbyggingu gervigreindarinnviða sem stuðli að aukinni framleiðni, verðmætasköpun og gæðum í opinberri þjónustu.

Verkefnið felur m.a. í sér fjárfestingu í reikniinnviðum og vélbúnaði í samstarfi hins opinbera og einkaaðila, með áherslu á gagnaöryggi, menningarlega sérstöðu og gervigreindarfullveldi sem tryggir örugg yfirráð yfir tæknilausnum og mikilvægum gögnum. Leitast verður við að tryggja að fjárfestingar í innviðum styðji jafnframt við þekkingaruppbyggingu og virðisaukandi starfsemi á Íslandi. Þá verður vinna hafin við þróun og rekstur íslensks mállíkans í samstarfi við alþjóðleg tæknifyrirtæki, með það að markmiði að styrkja stafræna notkun íslenskrar tungu, efla stafrænt þjóðaröryggi og bæta samkeppnisstöðu atvinnulífsins.

Tímarammi: 2026–2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Samstarfsaðilar: Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, undirstofnanir og fyrirtæki á sviði gervigreindar.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Styrkjum innviði; Eflum vísindi og nýsköpun; Nýsköpun og tækniþróun.

Áætlaður kostnaður: 1,1 ma.kr.

Afurð: Aukin fjárfesting í reikniinnviðum og vélbúnaði fyrir þróun og notkun gervigreindar, í samstarfi opinberra aðila og einkaaðila. Fyrstu áfangar í þróun á íslensku mállíkani.

Var efnið hjálplegt?