7. Löggjöf um rýni fyrir erlendar fjárfestingar
| Aðgerðinni er lokið |
Staða aðgerðarinnar
Nóvember 2026: Frumvarp til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu var samþykkt sem lög 19. júní. Lögin taka gildi 1. janúar 2027.
Aðgerðin
Markmið aðgerðarinnar er að hér á landi verði skýr og lögbundinn rammi um rýni á erlendum fjárfestingum líkt og innan annarra EES-ríkja.
Unnið verður að heildarlöggjöf um rýni á fjárfestingum erlendra aðila undir formerkjum þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Lögunum er ætlað að tryggja faglega, skilvirka og fyrirsjáanlega málsmeðferð, með sérstakri áherslu á viðkvæma innviði og þjóðhagslega mikilvæga starfsemi. Slíkur rammi um faglega rýni á erlendum fjárfestingum er ekki til staðar í dag en með því að gera umgjörðina skýrari, skilvirkari og fyrirsjáanlegri má auka traust á íslensku fjárfestingaumhverfi.
Samhliða vinnu að löggjöfinni verða undirbúnar reglugerðir og leiðbeiningar með stoð í lögunum. Verða þær gefnar út á íslensku og ensku í kjölfar gildistöku laganna.
Tímarammi: Haust 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.
Framkvæmdaaðili: Atvinnuvegaráðuneytið leiðir vinnu í samráði við önnur ráðuneyti.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Aukum aðgengi að erlendum mörkuðum; Einföldum regluverk; Aukið áfallaþol.
Áætlaður kostnaður: Árlegur kostnaður áætlaður 30–40 m.kr. Innheimta þjónustugjalds kemur til móts við þann kostnað.
Afurð: Ný löggjöf.