7. Sérstök umgjörð um landeldi sem taki tillit til sérstöðu þess
| Aðgerðin er í vinnslu |
Staða aðgerðarinnar
Nóvember 2026: Frumvarp til laga um lagareldi var lagt fram á 157. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.
Aðgerðin
Markmið aðgerðarinnar er að stuðla að sjálfbærum og fyrirsjáanlegum vexti landeldis með skýru og stöðugu regluverki sem tekur mið af sérstöðu starfseminnar.
Lagaumhverfi verður endurskoðað þannig að sett verði sérstök og afmörkuð umgjörð um landeldi aðgreind frá regluverki sjókvíaeldis. Leyfisveitingar verða á hendi einnar stofnunar og eftirlit samræmt. Reglur verða einfaldaðar og sniðnar að rekstrar- og umhverfislegum forsendum landeldis, með það að markmiði að skapa skýr fjárfestingarskilyrði og tryggja sjálfbæra uppbyggingu greinarinnar.
Tímarammi: Vor 2026.
Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneytið.
Samstarfsaðilar: Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun.
Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Uppbygging um land allt; Auðlindir í allra þágu; Matvæli.
Áætlaður kostnaður: Innan ramma.
Afurð: Lagasetning.