Alþjóðlegt samstarf um rannsóknir
Vísindi eru í eðli sínu alþjóðleg og mikilvægt að íslensk nýsköpunarfyrirtæki og stofnanir stefni á alþjóðlegan markað. Umtalsverður hluti vísinda- og nýsköpunarstarfs á Íslandi er fjármagnaður af erlendum sjóðum og áætlunum. Aukin tækifæri felast í samstarfi við önnur ríki um fjármögnun rannsókna á ákveðnum sviðum og gæðaviðmiðum sem gilda í því samhengi, ekki síst í með nánu samstarfi við Norðurlönd.
Norrænt samstarf á sviði vísindamála
Samstarfi Norðurlanda á sviði rannsókna og menntunar er stýrt af norrænum ráðherrum menntamála og rannsókna, saman sitja þeir í ráðherranefnd um menntun og rannsóknir. Samstarfið miðar fyrst og fremst að því að efla norrænan virðisauka á eftirfarandi meginsviðum:
- skólasamstarf og fullorðinsfræðsla,
- æðri menntun og rannsóknir,
- tungumálasamstarf á Norðurlöndum,
- upplýsinga- og samskiptatækni.
Norræna samstarfið veitir íslenskum nemendum og stofnunum tækifæri til að fjármagna mennta-, rannsókna- og tungumálasamstarf á Norðurlöndum.
Ísland tekur þátt í starfi Nordforsk sem hefur umsjón með rannsóknum og rannsóknamenntun á Norðurlöndum. Stofnunin skipuleggur samstarfsverkefni og tekur Ísland m.a. þátt í verkefnunum Education for tomorrow og Toppforskningsinitiativet.
Evrópusamstarf
Aðild Íslands að EES-samningnum veitir rétt til þátttöku í margvíslegu samstarfi á sviði vísindamála við ríki innan ESB, EFTA ríkin og ríki sem hafa gert sérstaka samstarfssamninga um menntamál við ESB. Evrópusamstarfinu má skipta gróflega í tvo flokka: Samstarf um stefnumótun og samstarfsáætlanir, sem eru sjóðir sem veita fé til rannsóknarverkefna.
Samstarf um stefnumótun, þróun og úrbætur á sviði vísindamála
Ísland er hluti af Evrópska rannsóknarsvæðinu (ERA) og á sæti stjórnarnefnd þar um (European Research Area and Innovation Committee). Ísland tekur jafnframt þátt í starfi ERA vinnuhópa:
Vinnuhópur um innviði rannsóknaVinnuhópur um kynjajafnrétti í rannsóknumVinnuhópur um alþjóðlegt vísindasamstarfOECD
Markmið samstarfs OECD ríkja er þríþætt:
- Að ná sem mestum og varanlegustum hagvexti og sem hæstu atvinnustigi í aðildarríkjunum,
- að stuðla að almennri efnahagsþróun jafnt í aðildarríkjunum sem utan þeirra,
- að leggja sitt að mörkum til vaxtar og þróunar heimsviðskiptanna.
OECD birtir margvíslegar upplýsingar um vísindamál og má þar nefna OECD Science and Technology and Innovation Outlook.
Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
Var efnið hjálplegt?