06 apríl 2016Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Hópur flóttafólks frá Sýrlandi boðinn velkominn í dag
„Okkur er umhugað um að ykkur líði vel hér, takið fullan þátt í samfélaginu og verðið hluti af því“ sagði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, í móttökuathöfn síðdegis þegar hópur flóttafólks frá Sýrlandi var boðinn velkominn til landsins. Þetta eru fjórar fjölskyldur, þrjár þeirra sestjast að í Hafnarfirði og ein í Kópavogi.