07 júní 2013Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hittir sjávarútvegsstjóra ESB
Í gær, 6. júní var haldinn í Reykjavík fundur Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB. Meginmál fundarins var staða mála í deilu Íslands, Færeyja, Noregs og ESB um nýtingu makrílstofnsins í Norðaustur Atlantshafi.