08 maí 2013Innviðaráðuneytið
Hvað er spunnið í opinbera vefi 2013?
Gerð verður úttekt á opinberum vefjum ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga haustið 2013. Slík úttekt hefur verið gerð fjórum sinnum áður og er mikilvægt tæki til að fylgjast með þróun opinberra vefja með tilliti til innihalds (content), nytsemi (usability), aðgengis (accessibility), þjónustu (service) og lýðræðislegrar þátttöku (e-participation) á vefjum.