17 nóvember 2011Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Innanríkisráðherra flutti ávarp á hátíðarsýningu um afleiðingar vímuefnaneyslu
Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, ávarpaði gesti í Þjóðleikhúsinu síðastliðið þriðjudagskvöld en þá fór fram hátíðarsýning á forvarna- og skemmtifræðsluverkinu Hvað ef? Sýningin er ætluð unglingum og fjallar um afleiðingar áfengis- og vímuefnaneyslu.