10 september 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Fjárlagafrumvarpið:
Áhersla á almannatryggingar og lífeyrismál
Alls renna 122,6 milljarðar króna til verkefna á sviði félags- og húsnæðismála árið 2015 samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Þetta er aukning sem nemur 2,841 milljörðum frá þessu ári eða um 2,4%. Bætur lífeyrisþega eru varðar og 650 milljónum varið til hækkunar frítekjumarks á lífeyrissjóðstekjur ellilífeyrisþega.