26 apríl 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Má bjóða þér vatn?
Umhverfisráðuneytið, Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands, Landgræðsla ríkisins og Íslenska vatnafræðinefndin efna til hádegisfyrirlestra undir yfirskriftinni Má bjóða þér vatn? Fyrstu erindin verða í Norræna húsinu, miðvikudaginn 2. maí kl. 12:10 – 13:00 og verður fjallað um vatnsauðlindina á Íslandi og aðgang að vatni á heimsvísu.