18 janúar 2012ForsætisráðuneytiðEndurskoðuð þingmálaskráSamkvæmt þingskapalögum skal ríkisstjórnin við upphaf þings í janúar afhenda forseta Alþingis endurskoðaða áætlun um framlagningu stjórnarfrumvarpa.
18 janúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðEvrópsk könnun á viðhorfum sem varða málefni aldraðraÍslendingar hafa jákvæðara viðhorf til aldraðra og minni áhyggjur af hækkandi meðalaldri þjóðarinnar en almennt gerist hjá öðrum Evrópuþjóðum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar evrópskrar könnunar sem gerð var við upphaf Evrópuársins 2012.
18 janúar 2012Atvinnuvegaráðuneytið115 umsóknir um styrk úr Þróunarsjóði Landsbanka og iðnaðarráðuneytisÞað er greinilega mikill áhugi hjá aðilum í ferðaþjónustunni fyrir Þróunarsjóðnum en markmið hans er að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum.
18 janúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðSkýrsla um lagaramma orkumálaSkýrsla starfshóps iðnaðarráðherra um lagaramma orkumála var kynnt í ríkisstjórn 17. janúar. Í skýrslunni er greining á þeim álitaefnum sem tengjast fyrirkomulagi á orkumarkaði og eignarhaldi orkuvinnslu.
18 janúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðVefur Fiskistofu í fremstu röðBirtar hafa verið niðurstöður könnunar á gæðum opinberra vefja. Samkvæmt henni hefur Fiskistofa bætt vef sinn meira en aðrar opinberar stofnanir og mælist vefurinn nú sem einn af fimm bestu vefjum ríkisstofnana á Íslandi.
18 janúar 2012ForsætisráðuneytiðFækkun ráðuneyta og efling StjórnarráðsinsGrein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í Fréttablaðinu 18. janúar 2011.
18 janúar 2012InnviðaráðuneytiðViðurkenningar veittar fyrir bestu opinberu vefinaNiðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á fundi í dag undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2012? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina.
18 janúar 2012UtanríkisráðuneytiðTrúnaðarbréfsafhending í BandaríkjunumGuðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, afhenti 18. janúar 2012 Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.
18 janúar 2012InnviðaráðuneytiðViðurkenningar veittar fyrir bestu opinberu vefinaNiðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á fundi í dag undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina. Hlaut vefur Tryggingastofnunar viðurkenninguna besti ríkisvefurinn 2011 og vefur Akureyrarbæjar viðurkenninguna besti sveitarfélagavefurinn 2011.
17 janúar 2012HeilbrigðisráðuneytiðUpplýsingar til kvenna með P.I.P. brjóstafyllingarVelferðarráðuneytið beinir eftirfarandi upplýsingum til kvenna með P.I.P. brjóstafyllingar í tengslum við ákvörðun stjórnvalda um að bjóða konunum ómskoðun til að kanna ástand púðanna og brottnám þeirra leiði skoðun í ljós að þeir leki.
17 janúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðÓdýrar talnakúnstir Viðskiptaráðs eftir Steingrím J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherraGrein birtist í Fréttablaðinu þann 14. janúar 2012
17 janúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðEftirgjöf skulda yfir einum milljarði krónaEftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar birtir greinargerð um endurskipulagningu fyrirtækja þar sem eftirgjöf skulda nemur hærri fjárhæð en 1 milljarði króna.
17 janúar 2012DómsmálaráðuneytiðSkilafrestur í hönnunarsamkeppni um fangelsi til 16. aprílHönnunarsamkeppni um Fangelsi á Hólmsheiði stendur nú yfir og er skilafrestur tillagna til 16. apríl næstkomandi. Tvö fyrirspurnartímabil fyrir þátttakendur eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 30. janúar 2012 en því síðara 26. mars 2012.
17 janúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðStyrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála 2011Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur samþykkt tillögur innflytjendaráðs um veitingu styrkja úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2011. Alls bárust 49 umsóknir og voru 10 milljónir króna til úthlutunar. Veittir voru styrkir til ellefu verkefna.
16 janúar 2012ForsætisráðuneytiðRangfærslur Samtaka atvinnulífsins leiðréttarForsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar sent Samtökum atvinnulífsins svarbréf þar sem rangfærslur samtakana í bréfi frá 10. janúar sl. eru leiðréttar.
16 janúar 2012ForsætisráðuneytiðSkýrsla forsætisráðherra um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar„Ég fagna þessu tækifæri til að gefa Alþingi skýrslu um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar. Ég vil byrja á því að víkja nokkrum orðum að þeim breytingum sem orðið hafa og fyrirhugaðar eru í Stjórnarráðinu.“
16 janúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðStaða mála hjá Umboðsmanni skuldara 1. janúar 2012Á fundi velferðarvaktarinnar 3. janúar 2012 var meðal annars fjallað um stöðu mála hjá Umboðsmanni skuldara. Á þessu minnisblaði frá umboðsmanni má sjá yfirlit yfir málin og stöðu þeirra.
16 janúar 2012HeilbrigðisráðuneytiðYfirlýsing norrænna geislavarnastofnana um tölvusneiðmyndarannsóknirNorrænar geislavarnastofnanir hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um tölvusneiðmyndarannsóknir þar sem áhersla er lögð á að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Fjöldi tölvusneiðmyndarannsókna hefur aukist verulega á Norðurlöndunum síðastliðin 20 ár.
16 janúar 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðOpin málstofa um inntak og áherslur nýrra laga um landgræðsluNefnd, sem umhverfisráðherra skipaði á vordögum til að semja greinargerð um inntak og áherslur nýrra landgræðslulaga boðar til málstofu til að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum varðandi vinnu nefndarinnar.
16 janúar 2012ForsætisráðuneytiðSkýrsla forsætisráðherra um störf og stefnu ríkisstjórnarinnarForsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, flutti Alþingi munnlega skýrslu sína um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar þegar alþingismenn komu saman til fyrsta fundar eftir jólaleyfi í dag.
16 janúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðVelferðarráðherra heilsast vel eftir aðgerðGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra fór í aðgerð vegna bráðrar botnlangabólgu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í gær. Aðgerðin tókst vel og lætur ráðherra vel af líðan sinni en þarf að halda kyrru fyrir í nokkra daga að læknisráði.
16 janúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðStyrkir úr ÆskulýðssjóðiMennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.
16 janúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðDagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk 2012Í lögum um grunnskóla segir að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Jafnframt er kveðið á um að nemendur 10. bekkjar skuli á fyrri hluta skólaársins þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.
13 janúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðErlendir ferðamenn aldrei fleiriHeildarfjöldi erlendra ferðamanna árið 2011 var rúmlega 565 þúsund og er um að ræða 15,8% aukningu frá 2010 en þá voru erlendir ferðamenn tæplega 489 þúsund talsins. Hafa ferðamenn aldrei verið fleiri á einu ári.
13 janúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðBreyting á reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með áburði.Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð sem heimilar Matvælastofnun með ótvíræðum hætti að birta einstakar niðurstöður greininga vegna eftirlits með áburði sem er á markaði hérlendis.
13 janúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðFramkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólksTillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012–2014 er nú aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins. Tillagan var unnin í samræmi við bráðabirgðaákvæði laga um málefni fatlaðs fólks sem meðal annars kveður á um að sett skuli fram stefna í málefnum fatlaðs fólks, forgangsröðun verkefna, aðgerðaáætlun og skilgreindir árangursmælikvarðar.
13 janúar 2012Fjármála- og efnahagsráðuneytiðSkýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um gerð rammalöggjafar fyrir opinber fjármálFjármálaráðuneytið hefur um nokkurt skeið stefnt að endurskoðun laga um fjárreiður ríkisins sem sett voru árið 1997.
13 janúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenntaþing og þjóðfræði á StröndumMennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, heimsótti Hólmavík.
13 janúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðStyrkir úr SprotasjóðiMennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
13 janúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðAuglýsing frá FornleifasjóðiFornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001.
13 janúar 2012DómsmálaráðuneytiðHeimsótti svæðisstjórn björgunarsveita höfuðborgarsvæðisÖgmundur Jónasson heimsótti í dag svæðisstjórn björgunarsveita höfuðborgarsvæðisins og kynnti sér stjórnstöðvarbíl sem útbúinn hefur verið. Hefur bíllinn komið að góðum notum við leitar- og björgunaraðgerðir á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
13 janúar 2012DómsmálaráðuneytiðDrög að lagafrumvarpi um vopn, sprengiefni og skotelda til umsagnarTil umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að frumvarpi að nýjum lögum um vopn, sprengiefni og skotelda sem koma eiga í stað vopnalaga nr. 16/1998. Reynslan af gildandi lögum hefur ekki verið að öllu leyti góð en af þeim hefur hlotist nokkur óvissa og ágreiningur.
13 janúar 2012InnviðaráðuneytiðMálþing um sveitarstjórnarmál 10. febrúar á AkureyriMálþing um sveitarstjórnarmál verður haldið á Akureyri 10. febrúar á vegum nefndar innanríkisráðherra um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Skýrt verður frá könnun meðal sveitarstjórnarmanna og alþingismanna um afstöðu þeirra til lýðræðismála, sameiningarmála og samvinnu sveitarfélaga og flutt verða erindi um eflingu sveitarstjórnarstigsins.
13 janúar 2012InnviðaráðuneytiðSkýrsla um gjaldtöku fyrir notkun samgöngumannvirkjaVegna umfjöllunar um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um gjaldtöku fyrir notkun samgöngumannvirkja sem verið hefur aðgengileg á vef Hagfræðistofnunar er skýrslan nú einnig birt á vef innanríkisráðuneytisins.
12 janúar 2012InnviðaráðuneytiðBreytingar á lögum um fjarskiptasjóðUm áramótin tóku gildi ný lög nr. 179/2011 um breytingu á lögum um fjarskiptasjóð. Þar er gildistími sjóðsins framlengdur um fimm ár, til ársloka árið 2016. Markmið breytingarinnar er fyrst og fremst að tryggja að fjarskiptasjóður nái að fylgja eftir þeim verkefnum sem eru á lokastigum vegna fyrri fjarskiptaáætlunar, þ.e. háhraðanetsverkefni fjarskiptasjóðs.
12 janúar 2012Fjármála- og efnahagsráðuneytiðGreiðsluuppgjör ríkissjóðs jan - nóv 2011Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 liggur nú fyrir.
12 janúar 2012InnviðaráðuneytiðKynning 18. janúar á niðurstöðum könnunarMiðvikudaginn 18. janúar nk. verða kynntar niðurstöður 4. úttektar á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga. Viðurkenningar verða veittar fyrir besta ríkisvefinn og besta sveitarfélagsvefinn. Kynningin fer fram á Grand Hótel frá kl. 12-14 og skráning er á vefnum sky.is.
12 janúar 2012Fjármála- og efnahagsráðuneytiðNýr aðstoðarmaður fjármálaráðherraGunnar Tryggvason verkfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármálaráðherra.
12 janúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðNorrænir starfsmenntunarstyrkirMenntamálaráðuneyti Danmerkur veitir á námsárinu 2011-2012 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnnám eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í starfsmenntaskólum eða framhaldsnáms starfsmenntakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi.
12 janúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðFjórða úthlutun Æskulýðssjóðs 2012Úthlutað var samtals 3.430.000 kr. til 16 verkefna.
11 janúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðSkilafrestur umsókna í Þróunarsjóð framlengdurVegna mikils álags á umsóknarkerfi Nýsköpunarmiðstöðvar og bilunar hefur kerfið legið niðri frá hádegi í dag. Skilafrestur umsókna er því framlengdur til kl. 16:00 miðvikudaginn 11. janúar.
11 janúar 2012Fjármála- og efnahagsráðuneytiðHluthafasamkomulög í tengslum við eignarhald á stóru viðskiptabönkunum þremurUm miðjan október 2011 barst beiðni til fjármálaráðuneytisins þar sem óskað var eftir aðgangi að hluthafasamkomulögunum í tengslum við hlutafjáreign í Landsbankanum hf., Íslandsbanka hf. og Arion banka hf., milli íslenska ríkisins annars vegar og gömlu bankanna hins vegar.
11 janúar 2012DómsmálaráðuneytiðRáðstefna um meðferð kynferðisbrota föstudaginn 20. janúar 2012Innanríkisráðuneytið, Lagadeild Háskóla Íslands og Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni efna í samvinnu við Evrópuráðið til ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu þann 20. janúar. Málstofan fer fram í Skriðu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík og stendur frá klukkan 10 til 18.
11 janúar 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðÚthlutun ársins 2011Eftirtalin verkefni hlutu stuðning úr Kvískerjasjóði við úthlutun ársins 2011.
11 janúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðMennta- og menningarmálaráðherra fundar með Íþróttasambandi ÍslandsKatrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hélt árlegan samráðsfund ráðuneytisins með ÍSÍ og sérsamböndum þess 9. janúar sl.
11 janúar 2012InnviðaráðuneytiðUmsagnarfrestur um drög að reglum um undirskriftasafnanir til 16. janúarUmsagnarfrestur um drög að reglugerðum er varða undirskriftasafnanir hjá sveitarfélögum rennur út mánudaginn 16. janúar næstkomandi. Þeir sem vilja koma umsögn á framfæri geta sent þær á netfangið postur@irr.is.
11 janúar 2012InnviðaráðuneytiðUmsagnarfrestur um gátlista fyrir sveitarstjórnarmenn að renna útUmsagnarfrestur um umræðuskjal fyrir sveitarstjórnarmenn rennur út um helgina en nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins hefur sent sveitarstjórnarfólki skjal um nokkur málefni sem nefndin hefur haft til athugunar. Unnt er að senda umsagnir til og með 15. janúar á netfangið postur@irr.is.