09 september 2002Dómsmálaráðuneytið
Heimasíða átaks Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna gegn verslun með konur opnuð
Í dag hefur heimasíðu átaks Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna gegn verslun með konur verið hleypt af stokkunum. Á heimasíðunni má finna allar upplýsingar um sameiginlega átakið og átak í hverju ríki fyrir sig, s.s. markmið átaksins, mismunandi áherslur þess og mismunandi tengiliði.