15 febrúar 2016Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir skipuð skrifstofustjóri
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að skipa Steinunni Fjólu Sigurðardóttur, í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfis og skipulags í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Hæfnisnefnd sem skipuð var af ráðherra til að meta hæfni umsækjenda, sbr. reglur nr. 393/2012, taldi Steinunni Fjólu hæfasta til að gegna embættinu. Fimm umsækjendur voru um embættið.