05 júní 2009Atvinnuvegaráðuneytið
Nr. 20/2009 - Endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar
Með vísan til stefnuyfirlýsingar núverandi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða, hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, ákveðið að skipa starfshóp um endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar.