15 maí 2002Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Fréttatilkynning nr. 17/2002. Fundur fjármálaráðherra OECD 15. maí 2002 í París.
Dagana 15.-16. maí er haldinn í París árlegur ráðherrafundur Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar, OECD. Fyrri daginn var einkum fjallað um almenn efnahags- og ríkisfjármál og sótti Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, þann hluta fundarins fyrir Íslands hönd.