15 apríl 2008Dómsmálaráðuneytið
Ragna Árnadóttir sett ráðuneytisstjóri til 1. ágúst
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, hefur óskað eftir leyfi frá störfum til 1. ágúst 2008 vegna veikinda. Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri lagaskrifstofu ráðuneytisins, hefur verið sett ráðuneytisstjóri meðan á leyfi hans stendur.