28 mars 2007Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Tilraun verður gerð til að draga Wilson Muuga af strandstað
Tekist hefur samkomulag milli íslenska ríkisins og eigenda Wilson Muuga um að gerð verði tilraun til að ná skipinu af strandstað. Stefnt er að því að skipið verði dregið út á stórstraumsflóði 16. til 18. maí.Áætlaður kostnaður, um 40 milljónir króna, mun verða greiddur af eigendum skipsins og íslenska ríkinu. Hlutur ríkissjóðs í kostnaðinum verður 15 milljónir.